Kvalahéruð hvíta tjaldsins

Authors

  • Björn Þór Vilhjálmsson Háskóli Íslands

DOI:

https://doi.org/10.33112/

Keywords:

Lars von Trier, femínísmi, kvikmyndarýni, norrænar kvikmyndir, kristsgervingar

Abstract

Þessi grein er tilraun til að leiða Breaking the Waves, eina umdeildustu mynd danska leik-stjórans Lars von Trier, saman við það sem kalla mætti hið femíníska verkefni. Inn í þá umræðu fléttast greining á ásökunum um kvenhatur og -fyrirlitningu leikstjórans og afstaða er tekin til slíkrar umræðu í samhengi við þematísk vandamálasvæði sem tengjast í senn framsetningu á kvenpersónum og trúarlegri túlkunarhefð á verkum leikstjórans. Þessi umræða er, eins og áður segir, samofin greiningu á Breaking the Waves en í sambandi við þá mynd reynast píslarhugtakið og hugmyndin um kristsgervinga sérlega mikilvæg greiningartæki. Þá birtast karlmenn að öllu jöfnu ekki með ýkja hetjulegum hætti í myndum Triers og verður vikið að þessum þætti undir lok greinarinnar.

Author Biography

  • Björn Þór Vilhjálmsson, Háskóli Íslands

    Dósent í kvikmyndafræði við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands.

Published

2026-01-09