Reynsla kvenna af kynferðisofbeldi í nánu sambandi á unglingsárum: Berskjöldun og áhrif á skólagöngu
##doi.readerDisplayName##:
https://doi.org/10.24270/netla.2017.14Lykilorð:
unglingsstúlkur, ofbeldi í nánum samböndum, reynsluleysi, fræðsluskortur, áhrif á skólagöngu, brotthvarf úr framhaldsskólumÚtdráttur
Kynferðisofbeldi í nánum samböndum unglinga er samfélagslegt vandamál sem lítið hefur verið rannsakað hérlendis. Greinin byggir á reynslu 10 kvenna sem voru beittar kynferðisofbeldi í nánu sambandi sem unglingar og leitast verður við að svara spurningunum: Með hvaða hætti upplifðu viðmælendur berskjöldun í tengslum við kynferðisofbeldi í nánu sambandi sem unglingar og hvaða afleiðingar hafði ofbeldið varðandi skólagöngu þeirra? Niðurstöðurnar benda til þess berskjöldun, sem felst í ungum aldri, lítilli reynslu af samböndum og skorti á kynfræðslu, geti gert brotaþolum erfitt fyrir að koma auga á að um ofbeldi sé að ræða. En berskjöldun kvennanna átti þátt í því að þeim þótti upplifun sín jafnvel eðlilegur hluti þess að vera í nánu sambandi. Niðurstöður rannsóknarinnar benda enn fremur til þess að reynsla af kynferðisofbeldi í nánu sambandi á unglingsaldri geti haft alvarleg áhrif á skólagöngu brotaþola en ofbeldið hafði áhrif á skólagöngu allra kvennanna sem rætt var við og helmingur þeirra hætti alveg námi í kjölfarið.
##plugins.themes.default.displayStats.downloads##
Útgefið
Tölublað
Kafli
Leyfi
Copyright (c) 2017 Rannveig Ágústa Guðjónsdóttir, Gyða Margrét Pétursdóttir

Greinar í tímaritinu eru gefnar út undir leyfinu (Creative Commons Attribution 4.0 International License).