Fimm gæðaviðmið: Greiningarrammi til að meta kennaramenntun
##doi.readerDisplayName##:
https://doi.org/10.24270/netla.2025/20Lykilorð:
kennaramenntun, kennaranám, gæði kennaramenntunar, mat á kennaramenntun, háskólakennarar í kennaranámi, nýútskrifaðir kennararÚtdráttur
Tilgangur þessarar greinar er að kynna ramma sem er settur fram til að meta kennaramenntun og stuðla að nákvæmari og dýpri umræðu um gæði hennar. Greiningin beindist einkum að samþættri kennaramenntun á Norðurlöndum og til grundvallar lá rannsóknarspurningin: Hvaða mælikvarða ætti að nota til að meta gæði kennaramenntunar? Í stað þess að líta á gæði sem stöðugt eða einhliða fyrirbæri er í greininni litið á þau sem sívirk og margþætt. Til að svara rannsóknarspurningunni var farið kerfisbundið yfir margvíslegar heimildir, þar á meðal ritrýndar greinar, bókarkafla, norrænar samanburðarrannsóknir og matsskýrslur frá ýmsum löndum. Það efni var síðan greint með hugbúnaðinum NVivo 14 og var greiningarferlið byggt á þemakóðun. Niðurstöður leiddu í ljós fimm samofnar birtingarmyndir gæða – eða gæðavísa; aðsókn að kennaranámi, samþættingu, fræðivæðingu, seiglu og hæfni. Aðsókn að kennaranámi nær bæði til fjölda og gæða umsækjenda og varpar ljósi á hvort áhyggjur þurfi að hafa af fækkun umsókna og brottfalli. Samþætting beinist að samfellu milli fræðilegra kenninga, kennslufræði og hagnýtra þátta í kennaramenntun. Fræðivæðingin endurspeglar þróun í átt að rannsóknartengdu námi og dregur athygli að togstreitu milli fræðilegrar nákvæmni og hagnýts gildis. Seigla felst í hversu vel nýútskrifaðir kennarar takast á við umskiptin frá námi í starf þar sem áhersla er á mikilvægi starfsþjálfunar og stuðnings á vettvangi skólans. Að lokum er hæfni mælikvarði á hvort útskrifaðir kennaranemar geti skapað inngildandi og árangursríkt kennsluumhverfi, að Five Quality Indicators: An Analytical Framework for Evaluating Teacher Education 18 teknu tilliti til utanaðkomandi þrýstings, svo sem frá stofnunum sem gera kröfu um ábyrgðarskyldu. Niðurstaða greinarinnar er að þessir fimm mælikvarðar virki best þegar þeim er beitt sem samþættum ramma. Úrbætur á einum mælikvarða án þess að huga að öðrum geta haft ófyrirséð áhrif. Ramminn getur nýst í mati á kennaramenntun á heildstæðan og gagnreyndan hátt.
##plugins.themes.default.displayStats.downloads##
Niðurhal
Útgefið
Tölublað
Kafli
Leyfi
Copyright (c) 2025 Hans Harryson

Greinar í tímaritinu eru gefnar út undir leyfinu (Creative Commons Attribution 4.0 International License).
