Ókind af Adam borin

Höfundar

  • Arngrímur Vídalín Háskóli Íslands

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.33112/

Lykilorð:

Ágústínus frá Hippó, Ísidórus frá Sevilla, skrímsl, íslenskar miðaldabókmenntir, kristileg heimsmynd

Útdráttur

Í þessari grein verður tekin til skoðunar röksemdafærsla heilags Ágústínusar frá Hippó úr riti hans Guðsríkinu, þess efnis að, séu skrímsl yfirleitt til, þá hljóti þau að vera sköpuð af Guði, og séu þau ennfremur mennsk þá hljóti þau að vera afkomendur Adams og Evu. Það vakti ekki fyrir Ágústínusi að sanna tilvist skrímsla en þannig var þessari röksemdafærslu engu að síður tekið af heilögum Ísidórusi frá Sevilla og öðrum síðari tíma hugsuðum. Þvínæst eru áhrifum þessarar hugmyndar og síðari túlkunum á henni gerð skil og í hvaða mynd hún barst til Íslands á síðmiðöldum.

Um höfund (biography)

  • Arngrímur Vídalín, Háskóli Íslands

    Dósent í íslenskum bókmenntum fyrri alda við Deild faggreinakennslu HÍ.

Niðurhal

Útgefið

2026-01-09