Lúther á eylandinu. Viðtökur siðbótar á Íslandi frá sextándu til átjándu aldar

Höfundar

  • Skúli S. Ólafsson

Útdráttur

Í þessari grein er fjallað um þau áhrif sem rit Lúthers höfðu á Íslandi frá siðaskiptum til átjándu aldar. Því er haldið fram að áhrifin hafi verið minni hérlendis en annars staðar í veldi Danakonungs. Sú tilgáta er sett fram að þetta megi skýra með vísan til einangrunar þjóðar-innar og þess hversu fámenn menntuð yfirstétt var hérlendis. Hér hafi ekki þróast lúthersk sjálfsmynd með sama hætti og í þeim löndum þar sem nágrannaþjóðir aðhylltust aðrar játningar. Þá hafi yfirvöld hérlendis ekki talið ástæðu til að gefa út þau rit Lúthers sem hann sendi frá sér fyrir bændauppreisnina (1524–1525) þar sem hann ögraði ríkjandi menningu og hvatti til sjálfstæðrar hugsunar. Upptalning á þeim ritum Lúthers sem gefin voru út hér-lendis leiðir í ljós að þau skipa óverulegan sess samanborið við guðræknirit annarra höfunda. Af því efni sem kom út eftir siðbótarmanninn skipa Fræðin minni (1529) sérstöðu fyrir það hvað þau voru oft gefin út en í þeim festi hann í sessi þá stéttskiptingu sem var við lýði og brýndi fyrir fólki að hlýða yfirvaldinu.

Abstract
In this article the focus in on the influence of Luther’s works in Iceland from the time of the Reformation to the 18th century. It is maintained that Luther had less impact within Iceland at this particular period of time, than was the case elsewhere within the Danish kingdom, the reason being the isolation of the Icelandic nation, and the small number of educated scholars in the society. An Icelandic Lutheran self-identity was not established, mainly because the country did not have any neighboring states with a different Christian creed. Furthermore, Icelandic authorities did not publish any of Luther’s writings written prior to the Peasant’s revolt (1524–1525), where Luther confronted the established culture, and encouraged people to be independent in their thinking. A list of Luther’s works published in Icelandic, reveals that they are very few compared to numerous other religious publications. The Small Catechism is an exception, because how often it was published. In his Catechism, Luther validated the society’s class structure, and reiterated that each individual should remain obedient to his or her authorities.

Niðurhal

Útgefið

2020-06-30