Menningarmiðaðar kennsluaðferðir

Reynsla íslenskra kennaranema

Höfundar

##plugins.pubIds.doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/netla.2024/5

Lykilorð:

fjölmenningarleg menntun, fjöltyngi, kennaramenntun, háskólanám, eigindleg rannsókn

Útdráttur

Aukinn fjölbreytileiki í íslenskum grunnskólum skapar mörg tækifæri fyrir kennara til þess að nýta menningu, reynslu og tungumál nemenda í kennslu. Menningarmiðaðar kennsluaðferðir, sem byggja á kenningum um fjölmenningarlega menntun, bjóða upp á hagnýtan ramma til að skapa fjölbreytt og valdeflandi námsumhverfi fyrir öll börn. Markmið þessarar greinar er að kanna viðhorf íslenskra kennaranema til menningarmiðaðra kennsluaðferða og rannsaka reynslu þeirra af vinnu með grunnskólabörnum með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn. Auk þess verða vangaveltur þeirra um stöðu fjölmenningarlegrar menntunar innan kennaranámsins skoðaðar.

Um höfund (biography)

Artëm Ingmar Benediktsson , Høgskolen i Innlandet

Artëm Ingmar Benediktsson (artem.benediktsson@inn.no) er nýdoktor og rannsakandi við deild kennslu- og menntunarfræði í Høgskolen i Innlandet, Noregi. Árið 2020 lauk hann doktorsnámi í menntavísindum frá Háskóla Íslands. Doktorsritgerð hans fjallaði um reynslu innflytjenda af námsumhverfi og kennsluaðferðum í íslenskum háskólum. Núverandi rannsókn hans beinist að því að greina stöðu fjölmenningarlegrar menntunar í kennaramenntun í Danmörku, Noregi og á Íslandi.

Niðurhal

Útgefið

2024-06-03

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar

Mest lesnu greinar eftir sama höfund(a)