Stærðfræðikunnátta nema við upphaf kennaranáms. Samanburður áranna 1992 og 2014

Höfundar

  • Freyja Hreinsdóttir
  • Fridrik Diego

##plugins.pubIds.doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/netla.2019.4

Lykilorð:

Kennaranám, stærðfræðikunnátta kennaranema, menntun stærðfræðikennara, könnunarpróf við Háskóla Íslands

Útdráttur

Haustið 2014 var gerð könnun á stærðfræðikunnáttu nýnema við Kennaradeild Menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Lagður var fyrir listi með spurningum úr hefðbundinni grunnskólastærðfræði sem áður hafði verið lagður fyrir árið 1992. Í greininni er sagt frá helstu niðurstöðum og árangur þátttakenda árið 2014 borinn saman við árangur þeirra sem þreyttu sama könnunarpróf 22 árum áður. Niðurstöður árið 1992 ollu vonbrigðum og áhyggjum rannsakenda, frammistaða þátttakenda reyndist að f lestu leyti lakari en búist var við. Árið 2014 reyndist árangurinn enn lakari en áður því meðaltal hlutfalls réttra svara fór úr 53% niður í 44%. Ýmsar nýlegar rannsóknir og skýrslur gefa einnig til kynna að stærðfræðilegan undirbúning grunnskólakennara þurfi að auka og bæta. Í þorra tilfella er formlegt stærðfræðinám grunnskólakennara lítið umfram það stærðfræðinám sem þeir búa að úr grunn- og framhaldsskóla. Staða nýnema er því verðugt athugunarefni þar sem fæstir þeirra bæta við sig miklu námi í stærðfræði í kennaranámi. Í greininni eru settar fram hugleiðingar um viðbrögð við niðurstöðum könnunarinnar.

Um höfund (biographies)

Freyja Hreinsdóttir

Freyja Hreinsdóttir (freyjah@hi.is) er dósent í stærðfræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hún lauk BS-prófi í stærðfræði frá Háskóla Íslands árið 1986, MS-prófi í stærðfræði frá Northwestern University árið 1988 og doktorsprófi í stærðfræði frá Stokkhólmsháskóla árið 1997. Helstu áhugasvið hennar eru víxlin algebra og stærðfræðimenntun, einkum notkun hugbúnaðar við nám og kennslu í stærðfræði og starfsþróun kennara. Hún hefur unnið að þýðingu frjálsa hugbúnaðarins GeoGebru undanfarin 10 ár.

Fridrik Diego

Friðrik Diego (fd@hi.is) er lektor í stærðfræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hann lauk BS-prófi í stærðfræði við Háskóla Íslands árið 1982, Maîtrise-prófi í hreinni stærðfræði frá Université de Paris VI árið 1985 og námi til kennsluréttinda við Háskóla Íslands árið 1994. Helstu áhugasvið hans hafa verið algebra og talnafræði en í seinni tíð hefur hann töluvert fengist við þrautastærðfræði í tengslum við íslenska og alþjóðlega stærðfræðikeppni.

Niðurhal

Útgefið

2019-07-03

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar