Hvað voru kjósendur að hugsa? Forsetakosningar á Íslandi 2012

Höfundar

  • Gunnar Helgi Kristinsson
  • Indriði H. Indriðason
  • Viktor Orri Valgarðsson

##plugins.pubIds.doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.13177/irpa.a.2012.8.2.2

Lykilorð:

Forsetakosningar, Ísland, persónuþættir, áhrif stjórnmálaflokka, taktísk kosning.

Útdráttur

Forsetakosningar á Íslandi hafa ekki mikið verið rannsakaðar af félagsvísindafólki og lítið er þess vegna vitað um hvaða þættir hafa áhrif á úrslit þeirra. Forsetakosningarnar 30. júní 2012 voru óvenjulegar annars vegar vegna þess að sitjandi forseti hlaut alvarlegri mótframboð og lægra hlutfall atkvæða en áður eru dæmi um í forsetakosningum á Íslandi og hins vegar vegna þess að meiri deilur urðu um eðli embættisins sjálfs. Í þessari grein er fjallað um það hvaða þættir höfðu áhrif á úrslitin, á grundvelli könnunar sem gerð var á netinu og annarra gagna. Niðurstöðurnar benda til þess að kjósendur hafi almennt lagt meira upp úr persónulegum þáttum eins og hæfni, ímynd og heiðarleika en málefnum eða stjórnmálaskoðunum frambjóðenda þegar þeir útskýrðu val sitt þótt fram komi að kjósendur meginframbjóðendanna tveggja hafi mjög ólíka sýn á forsetaembættið. Líklegt virðist þó að afstaða kjósenda til ríkisstjórnarinnar hafi verið sterkasti áhrifavaldurinn á niðurstöður kosninganna. Fylgislitlir frambjóðendur virðast í nokkrum mæli hafa skaðast af taktískri kosningu, en ekkert bendir til að það hafi haft veruleg áhrif á úrslit kosninganna.

Um höfund (biographies)

Gunnar Helgi Kristinsson

Prófessor við Háskóla Íslands.

Indriði H. Indriðason

Dósent við University of California, Riverside.

Viktor Orri Valgarðsson

Meistaranemi við Háskóla Íslands.

Niðurhal

Útgefið

15.12.2012

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar

Mest lesnu greinar eftir sama höfund(a)

1 2 3 > >>