Ímyndarþættir sem spávísar um traust í bankageiranum

Höfundar

  • Þórhallur Guðlaugsson
  • Friðrik Larsen

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24122/tve.a.2014.11.1.1

Lykilorð:

Ímynd, ímyndarmælingar, viðskiptabankar, traust.

Útdráttur

Í þessari grein er leitast við að svara eftirfarandi rannsóknarspurningum: Hvaða ímyndarþættir spá fyrir um traust til íslenskra banka og hvaða ímyndarþættir hafa mest vægi þegar spáð er fyrir um traust til íslenskra banka? Niðurstöður rannsóknarinnar eru að stærstum hluta byggðar á tveimur könnunum frá 2013 og 2014 en einnig nokkrum sambærilegum könnunum sem gerðar hafa verið á bankakerfinu, bæði fyrir og eftir bankahrunið 2008. Niðurstöður rannsóknarinnar leiða í ljós fjóra þætti sem skýra rúm 68% af breytileikanum í trausti. Þessir þættir eru: samfélagsleg ábyrgð, að leggja góðum málum lið, spilling og persónuleg þjónusta. Af þessum fjórum þáttum er samfélagsleg ábyrgð mikilvægastur.

Um höfund (biographies)

  • Þórhallur Guðlaugsson
    Háskóli íslands
  • Friðrik Larsen
    Háskóli Íslands

Niðurhal

Útgefið

15.06.2014

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar