Stjórnunaraðferðir og skipulag íslenskra fyrirtækja
##plugins.pubIds.doi.readerDisplayName##:
https://doi.org/10.24122/tve.a.2006.4.1.1Lykilorð:
Stjórnunaraðferðir, skipulag, íslensk fyrirtæki.Útdráttur
Í þessari grein er kynnt rannsókn á skipulagi og stjórnunaraðferðum í íslenskum fyrirtækjum. Markmið hennar er í fyrsta lagi að skoða hvaða skipulagsform (skipurit) eru við lýði í íslenskum fyrirtækjum. Í öðru lagi er markmiðið að kanna hvaða stjórnunaraðferðir eru algengastar í íslenskum fyrirtækjum og í þriðja lagi er markmiðið að athuga hvort þau hafi boðið út verkefni og tekið upp formlegt samstarf við önnur fyrirtæki. Niðurstöður benda til þess að staðsetning fyrirtækja á landinu og sú starfsgrein sem fyrirtæki starfa í hafi óveruleg áhrif á stjórnunaraðferðir eða skipulag þeirra. Stærð fyrirtækja og menntun stjórnenda hafði hins vegar mjög mikil áhrif á marga þætti stjórnunar og skipulags, svo sem þegar stuðst var við samþykkt skipulag, liðsvinnu, samstarf fyrirtækja og útboð verkefna. Engin sjáanleg tengsl voru á milli stjórnunaraðferða og rekstrarárangurs. Helsta skýring þess er að mikill meirihluti fyrirtækja skilaði hagnaði árið 2003. Þörf er á frekari rannsóknum á stjórnunaraðferðum og skipulagi til að efla íslenskt atvinnulíf og tryggja varanlegan árangur fyrirtækja.Niðurhal
Útgefið
15.06.2006
Tölublað
Kafli
Ritrýndar greinar
Leyfi

Útgefið efni tímaritsins er í opnum aðgangi samkvæmt skilmálum Creative Commons Attribution 4.0 License.